Fotbolti.net
22.11.13 - 20:52
Brynjar Ingi Erluson

Guðmundur Magnússon í Fram (Staðfest)

Guðmundur Magnússon í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Fram í Pepsi-deild karla hefur styrkt sig meira fyrir komandi átök í deildinni, en félagið hefur gert þriggja ára samning við Guðmund Magnússon, sem kemur frá Víking Ólafsvík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld.
Guðmundur, sem er 22 ára framherji, er uppalinn í Fram, en hann lék þar upp yngri flokka áður en hann yfirgaf félagið árið 2011 og samdi við Víking Ólafsvík.

Hann lék vel með Ólafsvíkingum í sumar, en liðið féll niður í fyrstu deildina aftur eftir hetjulega baráttu í deild þeirra bestu.

Guðmundur ákvað því að söðla um og reyndi því fyrir sér hjá Bjarna Guðjónssyni og félögum í Fram, en hann hefur nú gert þriggja ára samning við félagið.

Hann á að baki 51 leik og 6 mörk fyrir Fram, en hann hefur þá einnig leikið með bæði U17 og U19 ára landsliðum Íslands.

Guðmundur er ekki fyrsti og ekki seinasti leikmaðurinn sem Fram fær til félagsins, en félagið hefur þegar fengið Hafstein Briem, Ósvald Jarl Traustason, Tryggva Svein Bjarnason, Ásgeir Marteinsson, Guðmund Stein Hafsteinsson, Alexander Má Þorláksson, Hafþór Mar Aðalgeirsson, Einar Bjarna Ómarsson og Einar Má Þórisson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.