Fotbolti.net
22.11.13 - 11:11
Magnús Már Einarsson

Steinþór Freyr í Viking (Staðfest)

Steinþór Freyr í Viking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Steinþór Freyr Þorsteinsson hefur gengið til liðs við Viking eftir að samningur hans hjá nágrönnunum í Sandnes Ulf rann út.

Steinþór Freyr hefur verið í lykilhlutverki hjá Sandnes Ulf undanfarin þrjú ár og félög á Norðurlöndunum og í Þýskalandi sýndu honum áhuga.

Hann ákvað hins vegar að semja við Viking þar sem hann verður fjórði Íslendingurinn með Indriða Sigurðssyni, Jóni Daða Böðvarssyni og Birni Daníel Sverrissyni.
,,Ég vildi prófa eitthvað nýtt. Viking er stórt félag og þetta var spennandi valmöguleiki,\" sagði Steinþór við heimasíðu Viking eftir að hann skrifaði undir.

Steinþór er 28 ára gamall en hann lék með uppeldisfélagi sínu Breiðabliki og Stjörnunni áður en hann samdi við Örgryte í Svíþjóð sumarið 2010. Ári síðar fór hann síðan til Sandnes Ulf.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.