Fotbolti.net
22.11.26 - 16:57
Brynjar Ingi Erluson
Franska deildin

Sendi Doue hjartnæm skilaboð - „Við komumst í gegnum þetta saman“

Sendi Doue hjartnæm skilaboð - „Við komumst í gegnum þetta saman“
Canon

Mynd: EPA

Franski sóknarmaðurinn Desire Doue verður frá út tímabilið vegna krossbandsslita, en hann hefur fengið fallega stuðningskveðju frá manni sem glímir við sömu meiðsli.
PSG staðfestir slæm tíðindi af Doue - Fer í aðgerð á næstu dögum
TENGT EFNI

PSG staðfestir slæm tíðindi af Doue - Fer í aðgerð á næstu dögum

Doue sleit krossband í leiknum gegn Nice í gær, en um mánuður er síðan Kvaratskhelia varð fyrir sömu meiðslum í leik með PSG.

Báðir verða frá út tímabilið, en Georgíumaðurinn hefur nú sent liðsfélaga sínum fallega stuðningskveðju. Þeir eiga báðir langt endurhæfingarferli fyrir höndum og munu því ganga í gegnum erfiða tíma saman.

„Vertu sterkur, bróðir. Við komumst í gegnum þetta saman og áður en langt um líður verðum við aftur á vellinum, brosandi og að gera það sem við elskum mest. Við stöndum allir með þér í þessu,“ skrifaði Kvaratskhelia til Doue.

PSG mun væntanlega leita á félagaskiptamarkaðinn í janúar til að styrkja sóknarlínuna, enda er orðið ansi fáliðað á vængjunum og þarf á liðsstyrk að halda ætli það sér að vinna Meistaradeildina þriðja árið í röð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.