Fotbolti.net
22.11.26 - 17:07
Ívan Guðjón Baldursson

Andri nálægt sigurmarkinu: Erfitt að trúa þessu

Andri nálægt sigurmarkinu: Erfitt að trúa þessu
Canon

Mynd: Instagram/skjáskot

Andri Lucas Guðjohnsen var á sínum stað í byrjunarliði Blackburn Rovers í Championship deildinni í dag og hélt uppteknum hætti með því að skora mark og fiska vítaspyrnu í 2-2 jafntefli.
Championship: Andri skoraði og fiskaði víti í nágrannaslagnum
TENGT EFNI

Championship: Andri skoraði og fiskaði víti í nágrannaslagnum

Andri er þar með búinn að skora 8 mörk í síðustu 8 deildarleikjum með Blackburn, auk þess að hafa verið funheitur með íslenska landsliðinu í landsleikjahlénu þar sem hann setti fjögur mörk í tveimur leikjum.

„Við jöfnuðum þá tvisvar sinnum og það eru vonbrigði að fara ekki með þrjú stig heim. Við verðum að taka þessu stigi," sagði Andri nokkuð svekktur að leikslokum, en hann komst afar nálægt því að gera sigurmarkið undir lok leiks þegar marktilraun hans fór í innanverða stöngina en rataði ekki yfir marklínuna.

„Satt að segja á ég erfitt með að trúa þessu, ég hélt að boltinn myndi rúlla inn þegar ég horfði á þetta - það var eins og þetta væri sýnt í hægagangi. Það munaði nokkrum sentimetrum, þetta féll ekki með mér í þetta skiptið."

Andri ræddi einnig um myndsímtal fyrir leik þegar liðið talaði við Tony Mowbray, fyrrum stjóra Blackburn sem er að glíma við heilsufarsvandamál.

„Tony hringdi í okkur fyrir leik og það lýsir honum svo vel sem manneskju að hann hafi tekið sér tíma í bataferlinu til að spjalla við okkur og tryggja að við værum tilbúnir í þennan mikilvæga leik."


Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough16+1332
2Stoke City16+732
3Wolves16+931
4Birmingham16+1329
5West Brom16+829
6Southampton16+1627
7QPR16+727
8Swansea16+427
9Sheffield Utd16+625
10West Ham16+1424
11Norwich16+924
12Portsmouth16+223
13Blackburn16-122
14Wrexham16-121
15Cardiff City16-118
16Millwall16-518
17Bolton16-918
18Bristol City16-1018
19Charlton Athletic16-1117
20Lincoln City16-1215
21Watford16-1415
22Burnley16-911
23Derby County16-1810
24Preston NE16-179
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.