Fotbolti.net
22.12.13 - 08:00
Magnús Már Einarsson

Lára Kristín í Stjörnuna (Staðfest)

Lára Kristín í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Lára Kristín Pedersen hefur gengið til liðs við Íslandsmeistara Stjörnunnar en hún kemur til félagsins frá Aftureldingu.

Lára Kristín er uppalin hjá Aftureldingu en þessi 19 ára gamli miðjumaður hefur verið í lykilhutverki hjá liðinu undanfarin ár.
,,Ég er virkilega ánægð með að hafa skrifað undir samning hjá Stjörnunni,\" sagði Lára við Fótbolta.net.

,,Ég hef leikið allan minn feril með Aftureldingu og vil þakka félaginu fyrir góða tíma.\"

Lára Kristín hefur samtals skorað níu mörk í 63 deildar og bikarleikjum með Aftureldingu en hún lék sinn fyrsta meistaraflokks leik með liðinu árið 2009.

Þá hefur Lára einnig leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.