Fotbolti.net
22.12.15 - 17:19
Elvar Geir Magnússon

Ásgeir Sigurgeirsson lánaður í KA (Staðfest)

Srdjan Tufedgzic, þjálfari KA, ásamt Ásgeiri.

Srdjan Tufedgzic, þjálfari KA, ásamt Ásgeiri.

Canon

Mynd: Heimasíða KA

KA og Stabæk hafa komist að samkomulagi um að KA fái Ásgeir Sigurgeirsson að láni út leiktímabilið 2016. Frá þessu er greint á heimasíðu Akureyrarfélagsins.
Ásgeir er 19 ára gamall framherji sem er uppalinn hjá Völsungi á Húsavík. Ásgeir hélt á vit ævintýranna til Stabæk í janúar 2014.

„Meiðsli hafa sett strik í reikning Ásgeirs sem er nú orðinn heill heilsu og mun leika í gulu og bláu næsta sumar,\" segir á heimasíðu KA sem leikur í 1. deildinni.

„Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ásgeir leikið yfir 40 leiki með Völsungi í deild og bikar og skorað í þeim 9 mörk. Þá hefur Ásgeir leikið 12 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað í þeim 4 mörk. KA-menn bjóða Ásgeir hjartanlega velkominn til liðsins.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.