Fotbolti.net
22.12.15 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Írunn Þorbjörg komin til Þór/KA (Staðfest)

Írunn Þorbjörg komin til Þór/KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kvennaboltinn
Þór/KA er búið að bæta við sig gríðarlega sterkum leikmanni fyrir næsta tímabil í Pepsi-deild kvenna.

Írunn Þorbjörg Aradóttir var að skrifa undir tveggja ára samning við liðið en hún er 21 árs gömul og á þrátt fyrir það 106 meistaraflokksleiki að baki fyrir Stjörnuna.
Írunn, sem lék með Stjörnunni í Meistaradeildinni, getur spilað í vörn og á miðju en hún á 30 leiki að baki með yngri landsliðum Íslands. ,



,Það er mikill fengur fyrir okkur að fá jafn reynslumikinn leikmann og Írunn er inní okkar hóp. Hún færir okkur ekki bara gæði og reynslu heldur einnig hugarfar sigurvegara sem er okkur afar mikilvægt,"
sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þór/KA samkvæmt vefsíðu Þórsara.



„Írunn er toppleikmaður og góður karakter sem á eftir að vera lykilmaður í sterku liði ÞórKA á næstunni. Ekki skemmir fyrir að hún er ein af þeim sem á eftir að gera sterkt tilkall til A-landsliðssætis á næstu misserum ef heldur fram sem horfir. Það býr mikið í þessum leikmanni. Við erum himinlifandi með þessa undirskrift."

Heimild: Thorsport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.