22.12.15 - 19:30
Alexander Freyr Tamimi
Rannsókn Bolton lokið - Neil Lennon verður áfram (Staðfest)

Neil Lennon verður áfram stjóri Bolton.

Mynd: Getty Images

Neil Lennon verður áfram stjóri Bolton.

Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnufélagið Bolton hefur greint frá því að Neil Lennon verði áfram knattspyrnustjóri liðsins eftir að hafa rannsakað ásakanir tengdar einkalífi hans.
Fótbolti.net <a href=\"http://fotbolti.net/fullStory.php?id=199460\" target=\"_blank\">greindi frá ótrúlegri grein</a> breska dagblaðsins Mirror í gær, en þar var því haldið fram að Lennon hefði haldið framhjá eiginkonu sinni og hótað hjákonunni í þokkabót. Átti hann að hafa sent henni ógnandi skilaboð úr farsíma samstarfsmanns síns.

Í kjölfar greinarinnar hóf Bolton rannsókn á málinu en hún virðist hafa tekið ansi stuttan tíma og er henni nú lokið. Lennon verður því áfram við stjórnvölinn, en þó er ljóst að hann er valtur í sessi vegna dapurs gengis liðsins á tímabilinu.
Norður-Írinn tók við Bolton í október 2014 og tókst að halda liðinu uppi í Championship deildinni. Nú er liðið hins vegar á botni deildarinnar, sex stigum frá öruggu sæti, eftir einungis einn sigur í fyrstu 22 leikjum tímabilsins.