22.12.21 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Eyrún Vala lánuð til Aftureldingar (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding er búið að tryggja sér öflugan bakvörð og kantmann að láni sem skoraði fjögur mörk með Augnablik í Lengjudeildinni í sumar.
Eyrún Vala Harðardóttir, fædd 2004, er búin að skrifa undir lánssamning við Aftureldingu eftir að hafa spilað 45 keppnisleiki með Augnablik.
Eyrún Vala varð Íslands- og bikarmeistari með 2. flokki Breiðabliks í sumar á sama tíma og hún spilaði 14 leiki með Augnablik í Lengjudeildinni.
„Við erum ákaflega ánægð í Mosfellsbænum að fá jafn spennandi leikmann og Eyrúnu til liðs við félagið fyrir komandi tímabil í efstu deild kvenna," segir í færslu Aftureldingar á Instagram.
„Við höfum auðvitað vitað af Eyrúnu lengi en hún hefur spilað gegn okkur með Augnablik síðustu þrjú tímabil og hrifumst við af hennar leik í sumar og töldum hana passa inn í okkar lið og hugmyndafræði. Við viljum þakka Breiðablik fyrir virkilega fagleg vinnubrögð og vilja í okkar garð í kringum þessi tímabundnu félagaskipti."