Fotbolti.net
22.12.21 - 14:15
Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliði færeyska landsliðsins í KR (Staðfest)

Hallur Hansson (KR) og Arnór Smárason (Valur) sem hér eigast við í landsleik Íslands og Færeyja mætast í íslenska boltanum í sumar.

Hallur Hansson (KR) og Arnór Smárason (Valur) sem hér eigast við í landsleik Íslands og Færeyja mætast í íslenska boltanum í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR tilkynnti rétt í þessu að félagið hafi komist að samkomulagi við færeyska landsliðsfyrirliðann Hall Hansson um að leika með liðinu næstu tvö árin.
Hallur er sókndjarfur og vinnusamur miðjumaður sem hefur leikið lengst af sínum ferli í dönsku úrvalsdeildinni, en einnig í skosku úrvalsdeildinni og í Færeyjum.

Hallur kemur til KR frá Vejle en Hallur spilaði allan leikinn og átti stoðsendingu í þeirra síðasta leik fyrir jólafrí dönsku úrvalsdeildarinnar 29 nóvember, þar sem Vejle og topplið Midtjylland gerðu 1-1 jafntefli.

Hallur hefur á ferli sínum leikið 283 leiki og skorað í þeim 42 mörk. Þá hefur hann leikið 67 landsleiki fyrir færeyska landsliðið.

KR hefur verið duglegt á félagaskiptamarkaðnum frá því tímabilinu lauk en Hallur er fimmti leikmaðurinn sem kemur til félagsins. Markvörðurinn Aron Snær Friðriksson kom frá Fylki, Aron Kristófer Lárusson frá ÍA, Sigurður Bjartur Hallsson frá Grindavík og Stefan Alexander Ljubicic frá HK

Komnir:
Hallur Hansson frá Vejle
Aron Snær Friðriksson frá Fylki
Aron Kristófer Lárusson frá ÍA
Sigurður Bjartur Hallsson frá Grindavík
Stefan Alexander Ljubicic frá HK
Oddur Ingi Bjarnason frá Grindavík (var á láni)
Theódór Elmar Bjarnason frá Grikklandi (kom um mitt sumar)

Farnir
Alex Freyr Hilmarsson í ÍBV
Arnþór Ingi Kristinsson hættur
Guðjón Orri Sigurjónsson í ÍBV
Hjalti Sigurðsson í Leikni R. (fór í júlí)
Óskar Örn Hauksson til Stjörnunnar

Heimild: Vefur KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.