22.12.21 - 14:36
Hafliði Breiðfjörð
Gerrard segir leikmann Aston Villa hafa neitað að fara út úr bílnum

Steven Gerrard.

Mynd: EPA

Steven Gerrard.

Mynd: EPA
Steven Gerrard knattspyrnustjóri Aston Villa segir að óttinn við Covid-19 sé orðinn svo mikill að einn leikmaður liðsins hafi neitað að stíga út úr bílnum sínum.
Omricon afbrigði kórónaveirunnar hefur leikið England grátt og fer þar um sem eldur í sinu. Leikur Aston Villa gegn Burnley sem fara átti fram um síðustu helgi var skyndilega sleginn af á síðustu stundu vegna veirunnar. Gerrard segir að það verði martröð ef félagið þarf að leika tvo leiki á tveimur dögum meðan aðeins 14 leikmenn eru á lausu.
„Það kom upp sú staða um síðustu helgi þar sem einn leikmanna liðsins vildi ekki fara út úr bílnum sínum því hann var með einhver einkenni og hann á unga fjölskyldu, og það má mjög vel skilja hans afstöðu," sagði Gerrard.
„Þessi náungi á unga fjölskyldu, það eru að koma jól, og það er staða sem allir eru í. Það vill enginn fá veiruna. Allir vilja vernda fjölskylduna sína. Það er okkar hlutverk og forgangsatriði okkar verður alltaf fjölskyldan, að sjálfsögðu!" hélt hann áfram.
„Sem betur fer fór hann svo í próf og var ekki smitaður, en sá leikmaður væri ekki laus þann daginn og það eru margar svona uppákomur sem fólk sér ekki. Við berum verulega ábyrgð á að hlusta á leikmennina og taka rétt á hverri uppákomu sem verður á vegi okkar."

Heimild: Guardian