22.12.21 - 21:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hermann fær Englending sér til aðstoðar (Staðfest)

Dave Bell.

Mynd: ÍBV

Dave Bell.

Mynd: ÍBV
Hermann Hreiðarsson er kominn með aðstoðarmann í Vestmannaeyjum, hjá ÍBV.
ÍBV hefur ráðið til starfa Englendinginn Dave Bell og gerir hann tveggja ára samning.
„Dave kemur með mikla reynslu inn í þjálfarateymið en hann hefur starfað við fótbolta í áratugi. Sem dæmi má nefna að hann hefur verið á mála hjá Manchester United, Watford og í Skotlandi. Þá var hann einnig "caretaker" stjóri hjá Chetser á sínum tíma," segir í tilkynningu ÍBV.
„Dave heimsótti Vestmannaeyjar á dögunum og var heillaður af Eyjunni og er spenntur fyrir komandi verkefnum. Hann mun flytja til Eyja í upphafi árs."
ÍBV komst upp úr Lengjudeildinni síðasta sumar og leikur í Pepsi Max-deildinni á næsta ári.