22.12.21 - 19:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Laugi verður aðstoðarmaður Jóa Kalla (Staðfest)

Guðlaugur Baldursson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðlaugur Baldursson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðlaugur Baldursson hefur verð ráðinn sem aðstoðarþjálfari karlaliðs ÍA.
Guðlaugur var síðast þjálfari Þróttar Reykjavík. Hann stýrði liðinu síðasta sumar þegar það féll úr Lengjudeildinni. Hann ákvað að hætta eftir tímabilið.
Guðlaugur er reynslumikill þjálfari sem hefur verið aðalþjálfari hjá ÍBV, ÍR, Keflavík og Þrótti. Hann hefur einnig gegnt stöðu aðstoðarþjálfara hjá FH.
Hann kemur til með aðstoða Jóhannes Karl Guðjónsson við þjálfun ÍA næsta sumar.
Jóhannes Þór Harðarson hefur verið orðaður við starfið en ekki er útlit fyrir að hann komi fyrst Guðlaugur hefur verið ráðinn til starfa.
ÍA hafnaði í níunda sæti Pepsi Max-deildarinnar síðasta sumar og tapaði fyrir Víkingum í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.