Fotbolti.net
23.01.13 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Axel Kári í Víking R. (Staðfest)

Axel Kári í Víking R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur R. hefur fengið vinstri bakvörðinn Axel Kára Vignisson til liðs við sig frá ÍR.

Axel Kári hefur æft með Víkingi undanfarnar vikur og hann hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Axel Kári er uppalinn ÍR-ingur en hann hefur leikið með meistaraflokki félagsins síðan árið 2007.

Í fyrra skoraði Axel eitt mark í tólf leikjum þegar ÍR féll úr fyrstu deildinni.

Samtals hefur Axel Kári skorað tvö mörk í 99 deildar og bikarleikjum með ÍR-ingum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.