23.01.13 - 07:30
Magnús Már Einarsson
Dánjal Á Lakjuni í Leikni (Staðfest)

Dánjal mættur í Leiknisbúninginn. Með honum á myndinni er Oscar Clausen úr meistaraflokksráði félagsins.

Mynd: Leiknir.com

Færeyski knattspyrnumaðurinn Dánjal Á Lakjuni hefur samið við Leikni Breiðholti um leika með liðinu á komandi leiktíð í 1. deildinni.
Dánjal er fæddur á því herrans ári 1990 og er því 23 ára gamall. Hann á leiki með yngri landsliðum Færeyja en hann lék síðast með færeyska U21 árs landsliðinu.
Hann kemur frá ÍF frá Fuglafirði þar sem hann er alinn upp og hefur leikið nær allan sinn feril.
Dánjal er sóknarsinnaður leikmaður sem getur leikið fremstur á miðju, í fremstu víglínu og úti á vængjunum. Hann er þegar komin til landsins en fær ekki leikheimild fyrr en í febrúar svo hann verður ekki með Leikni gegn Víkingi í Reykjavíkurmótinu í kvöld.
Sumarið 2011 skoraði Dánjal eina mark ÍF Fuglafjarðar þegar liðið tapaði 1-3 á heimavelli fyrir KR í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Með því að smella hér er hægt að horfa á myndbandsviðtal við Dánjal af heimasíðu Leiknis.

Heimild: Heimasíða Leiknis