23.01.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Helena Ólafsdóttir fær alnöfnu sína í Val (Staðfest)

Helena Ólafsdóttir er farin í Val.

Mynd: Björn Ingvarsson

Helena Ólafsdóttir er farin í Val.

Mynd: Björn Ingvarsson

Helena Ólafsdóttir, markahæsti leikmaður Fjölnis síðastliðið sumar er gengin til liðs við Val en þar mun hún spila undir stjórn alnöfnu sinnar, Helenu Ólafsdóttur sem tók við þjálfun Vals síðastliðið haust.
Hjá Val hittir hún líka fyrir Þorleif Óskarsson sem þjálfaði lið Fjölnis síðasta sumar en hann er aðstoðarmaður Helenu og þjálfar 2. flokk kvenna sem Helena yngri er enn gjaldgeng í.
Helena var sem fyrr segir markahæsti leikmaður Fjölnis í 1. deild kvenna síðasta sumar. Hún skoraði 12 mörk í 18 leikjum liðsins sem tapaði í umspili um sæti í Pepsi-deildinni fyrir HK/Víkingi.
Hún hefur verið í meistaraflokksliði Fjölnis undanfarin þrjú ár en hún verður 19 ára á árinu.
Helena sem spilar framarlega á vellinum, á kanti, í framlínu eða fremst á miðjunni mun halda til Bandaríkjanna í skóla í lok sumars en verður hjá Val fram að því.

Helena Ólafsdóttir þjálfari Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorleifur Óskarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð