Fotbolti.net
23.01.13 - 18:39
Magnús Már Einarsson

M\'Vila til Rubin Kazan (Staðfest)

M\'Vila til Rubin Kazan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty

Rússneska félagið Rubin Kazan hefur keypt miðjumanninn Yann M\'Vila frá Stade Rennes í Frakklandi.

Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur verið orðaður við fjölmörg ensk félög undanfarna mánuði en á endanum fór hann til Rússlands.
Verðmiðinn á M\'Vila hefur hríðfallið undanfarna mánuði en árið 2010 ku Rennes hafa hafnað 28 milljóna punda tilboði frá ónefndu félagi.

Ekki hefur verið gefið upp hvað Rubin Kazan greiðir fyrir M\'Vila en það er þó mun lægra verð en 28 milljónir punda.

M\'Vila var í fyrra dæmdur í eins og hálfs árs bann frá franska landsliðinu eftir að hafa skellt sér á djammið í miðri keppnisferð með U21 árs landsliði Frakka.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.