Fotbolti.net
23.01.13 - 11:37
Magnús Már Einarsson

Þórarinn Ingi í Sarpsborg (Staðfest)

Þórarinn Ingi í Sarpsborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Facebook

Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður ÍBV, hefur formlega gengið til liðs við norska félagið Sarpsborg 08 á láni.
Þórarinn Ingi hefur verið lykilmaður í liði ÍBV undanfarin ár en þessi 22 ára gamli leikmaður skoraði fimm mörk í sautján leikjum í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.

,,Ég held að það sé draumur allra knattspyrnumanna að fara í atvinnumennsku og ég er þar engin undantekning. Ég hef stefnt að þessu síðan að ég var lítill peyji,\" sagði Þórarinn Ingi við Fótbolta.net á dögunum.

Sarpsborg tryggði sér sæti í norsku úrvalsdeildinni síðastliðið haust en markvörðurinn Haraldur Björnsson leikur einnig með liðinu.

Brian Deane, fyrrum framherji Leeds og Middlesbrough, þjálfar liðið en hann tók við stjórnartaumunum í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.