Fotbolti.net
23.01.13 - 23:32
Sebastían Sævarsson Meyer

Yoan Gouffran til Newcastle (Staðfest)

Yoan Gouffran er orðinn leikmaður Newcastle.

Yoan Gouffran er orðinn leikmaður Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle heldur áfram að versla inn í Frakklandi en í kvöld gekk félagið frá kaupum á Yoan Gouffran frá Bordeaux.

Samkomulag náðist milli félagana í gær og talið er að Newcastle greiði 1,4 milljón punda fyrir þennan 26 ára sóknarmann sem var á lokaári samnings síns við Bordeaux.
Hann mætti til Englands fyrr í dag til að gangast undir læknisskoðun og skrifaði loks undir fjögurra og hálfs árs samning við Newcastle.

Gouffran er þriðji leikmaðurinn úr frönsku úrvalsdeildinni sem hefur gengið í raðir Newcastle í mánuðinum en áður fékk liðið varnarmennina Mathieu Debuchy frá Lille og Mapou Yanga-Mbiwa frá Montpellier.

Þá á Newcastle von á fjórða leikmanninum frá Frakklandi í þessum mánuði en Massadio Haidara er sagður á leið til félagsins frá Nancy.

Gouffran skoraði 31 mark fyrir Bordeaux á fimm árum en hann mun fylla skarð Demba Ba sem fór til Chelsea fyrr í mánuðinum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.