23.01.14 - 07:30
Hafliði Breiðfjörð
Embla Grétarsdóttir í KR (Staðfest)

Embla er gengin í raðir KR að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Embla er gengin í raðir KR að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Embla Sigríður Grétarsdóttir er gengin í raðir KR að nýju eftir nokkur ár hjá Val. Þetta kemur fram á KR.is.
Embla sem er frá Hornafirði þekkir vel til hjá KR því hún lék í tíu ár með liðinu áður en hún fór til Vals fyrir tímabilið 2009.
Hún kom upphaflega til KR árið 1998 frá Sindra á Hornafirði og skoraði 29 mörk í 241 leik með KR.

Hún er fimmti leikjahæsti KR-ingurinn og ætti að fara uppfyrir Hrefnu Huld Jóhannesdóttur (243 leikir) og Olgu Færseth (252 leikir) á þessu ári að því er segir á vef KR.
Embla á að baki 10 leiki fyrir A-landslið Íslands.
KR hefur verði að styrkja lið sitt að undanförnu og fengið gamla KR-inga heim. Þannig er Júlíana Einarsdóttir farin að spila með liðinu að nýju og Guðlaug Jónsdóttir er orðin liðsstjóri.

Heimild: Vefur KR