23.01.14 - 09:44
Magnús Már Einarsson
Ragnar Sigurðsson til Krasnodar (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Sigurðsson hefur formlega gengið til liðs við rússneska félagið Krasnodar en hann kemur frá FC Kaupmannahöfn.
Félögin náðu samkomulagi um kaupverð í síðustu viku og í kjölfarið hélt Ragnar til Sameinuðu Arabísku Furstadæmanna þar sem Krasnodar hefur verið í æfingaferð að undanförnu.

„Þetta lið er í sjötta sæti deildarinnar. Ég er búinn að „gúggla\" þetta aðeins og ég þekki til tveggja leikmanna í liðinu. Ég er mjög spenntur fyrir þessu, ég er klárlega að fara í sterkari deild,\" sagði Ragnar í í viðtali við Fótbolta.net í síðustu viku.
Ragnar kom til FC Kaupmannahafnar árið 2011 eftir að hafa áður leikið vel með IFK Gautaborg í Svíþjóð.
Hann verður ekki eini Íslendingurinn í rússneska boltanum því Sölvi Geir Ottesen spilar með FC Ural eftir að hafa einnig komið til félagsins frá FC Kaupmannahöfn.