Fotbolti.net
23.01.14 - 07:00
Hafliði Breiðfjörð

Sara Atladóttir í Fjarðabyggð (Staðfest)

Sara í leik með FH.

Sara í leik með FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Sara Atladóttir hefur samið við Fjarðabyggð um að þjálfa og leika með félaginu í 1. deild kvenna árið 2014.
Sara mun vera aðstoðarþjálfari í mfl. kvenna en einnig leika með liðinu í sumar undir stjórn Brynjars Gestssonar.

Sara er 22 ára varnarmaður og hefur leikið 76 leiki í efstu tveimur deildum kvenna og skorað í þeim 4 mörk.

Sara hefur ávallt leikið með FH fyrir utan árið 2011 þegar hún lék 11 leiki með Fjarðabyggð og var þá á láni frá FH.

Hún er systir Sifjar Atladóttur landsliðskonu Íslands sem leikur með Kristianstad í Svíþjóð en bræður hennar eru einnig í boltanum, Emil Atlason í KR og Egill Atlason spilandi þjálfari Reynis Sandgerði. Faðir þeirra er Atli Eðvaldsson en hann er í dag þjálfari Aftureldingar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.