Fotbolti.net
23.01.14 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Twitter - Ódýrara en að vera í BDSM klúbbnum

David Moyes skrifaði grein á sínum tíma um hvernig ætti að vinna vítaspyrnukeppni.

David Moyes skrifaði grein á sínum tíma um hvernig ætti að vinna vítaspyrnukeppni.

Canon

Mynd: Twitter

Utan Vallar
Hér að neðan má sjá brot af boltaumræðunni á samskiptasíðunni Twitter í boði Vodafone. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.

Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet


Björn Þorláksson, leikmaður KR:
Ég er búinn að vera bíða í allan dag eftir Juan Mata til Manchester (staðfest)

Arnar Már Guðjónsson, leikmaður ÍA:
Hvað er þessi þyrla eiginlega lengi á leiðinni til Manchester? Húrra þessum félagsskiptum í gang! #Mata

Logi Bergmann ‏Eiðsson, sjónvarpsmaður:
Ég held ekki með United útaf fótboltanum. Það er bara ódýrara en að vera í BDSM klúbbnum. Okbæ. #fótbolti

Teitur Örlygsson, körfuboltaþjálfari:
Bara möguleiki á tveimur titlum núna. Champions League og enda fyrir ofan LFC í PL. #MUFC #aframmeðsmjörið

Sólmundur Hólm, skemmtikraftur:
Það er enginn íþróttalýsir í heiminum sem lýsir óvæntum augnablikum í fótbolta eins vel og @HoddiMagnusson. Einstök ástríða.

Guðmundur Benediktsson, Stöð 2 Sport:
Rafael, Januzaj, Jones, Welbeck & Fletcher taka víti. Eru þetta nöfnin sem maður vill sjá á vítalista hjá ensku meisturunum í semís?

Sigrún Linda:
Þú tapar ekki vító með markmann sem heitir Vito #fact #mannone

Halldór Árnason, þjálfari KV:
Mata er góður leikmaður og flottur karakter sem fékk aldrei sanngjörn tækifæri hja Móra. Frábært fyrir hann ef þetta gengur í gegn.

Vona samt að Man Utd menn átti sig á því að hann er ekki fullkominn leikmaður. Liability varnarlega og týnist oft í stórleikjum.

Ríkharð Óskar Guðnason, Rikki G:
Vona að Moyes sé búinn að teikna það upp hvar hann ætlar að nota Mata. Hann gerði það ekki með Fellaini.

Valur Gunnarsson, kennari:
Ánægður með Darra að biðjast afsökunar. Hlægileg umræða um að það átti ekki að birta þetta vonandi drepin í fæðingu.

Einar Matthías Kristjánsson, kop.is:
Þessi leikmannagluggi virðist ætla að verða litlu minni vonbrigði en glugginn síðasta sumar, bara búið að lækka standardinn núna. #hrumpf
Fyrir utan Egilshöllina í gær.

Fyrir utan Egilshöllina í gær.

Canon

Mynd: Twitter

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.