23.01.16 - 10:00
Arnar Geir Halldórsson
Cerci lánaður til Genoa (Staðfest)

Nær Cerci að endurvekja feril sinn?

Mynd: Getty Images

Nær Cerci að endurvekja feril sinn?

Mynd: Getty Images
Alessio Cerci hefur verið lánaður til ítalska úrvalsdeildarliðsins Genoa frá AC Milan.
Cerci sló í gegn með Fiorentina og Torino á sínum tíma sem varð til þess að hann var keyptur til Atletico Madrid.
Honum tókst aldrei að finna sig á Spáni og færði sig um set til AC Milan fyrir ári síðan. Þar hefur allt gengið á afturfótunum og vonast Cerci nú til að endurvekja ferilinn hjá Genoa sem situr í 16.sæti Serie A.
Hann er 28 ára gamall og getur leikið flestar stöður framarlega á vellinum.
Cerci á 14 A-landsleiki að baki fyrir Ítalíu en hefur ekki verið viðloðandi landsliðið síðan árið 2014.