Fotbolti.net
23.01.16 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson

Matt Ingram til QPR (Staðfest)

Ingram í leik gegn Aston Villa á dögunum

Ingram í leik gegn Aston Villa á dögunum

Canon

Mynd: Getty Images

QPR gekk í gær frá kaupum á enska markverðinum Matt Ingram en hann kemur til liðsins frá Wycombe Wanderers.
Ingram gerir fjögurra og hálfs árs samning við QPR og er kaupverðið hálf milljón punda.

Þessi 22 ára gamli markvörður hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu í D-deildinni með Wycombe en hann var valinn besti markvörður deildarinnar á síðustu leiktíð.

Hjá QPR kemur Ingram til með að keppa við gamla brýnið Rob Green og Alex Smithies um sæti í byrjunarliðinu en QPR situr í 15.sæti Championship deildarinnar eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.