Fotbolti.net
23.01.20 - 23:09
Ívan Guðjón Baldursson

Einkunnir Wolves og Liverpool: Traore maður leiksins

Henderson bestur í liði Liverpool

Einkunnir Wolves og Liverpool: Traore maður leiksins
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hafði betur gegn Wolves í enska boltanum í kvöld og jók þannig forystu sína á toppi úrvalsdeildarinnar í sextán stig.
Leikurinn gegn Wolves var langt frá því að vera auðveldur. Það var Roberto Firmino sem gerði sigurmark Liverpool með glæsilegu skoti á 84. mínútu.

Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir og var Adama Traore, hægri kantmaður Úlfanna, valinn bestur.

Hann var eini í liði heimamanna sem fékk 8 í einkunn, rétt eins og fyrirliðinn Jordan Henderson var sá eini í liði gestanna til að fá áttuna. Henderson skoraði og lagði upp í sigrinum.

Matt Doherty var slakasti maður vallarins í hægri bakverðinum ásamt Diogo Jota sem kom inn af bekknum.

Wolves: Patricio (7), Saiss (6), Dendoncker (6), Coady (6), Doherty (5), Jonny (6), Moutinho (7), Neves (6), Neto (7), Traore (8), Jimenez (7).
Varamaður: Diogo Jota (5)

Liverpool: Alisson (7), Robertson (5), Alexander-Arnold (6), Van Dijk (7), Gomez (6), Henderson (8), Oxlade-Chamberlain (7), Wijnaldum (6), Mane (6), Salah (6), Firmino (7).
Varamenn: Minamino (6), Fabinho (7)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.