Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. janúar 2020 10:12
Magnús Már Einarsson
Keown telur að Solskjær endist ekki í starfi út tímabilið
Mynd: Getty Images
Martin Keown, fyrrum varnarmaður Arsenal, telur að Ole Gunnar Solskjær muni ekki endast í starfi út tímabilið.

Solskjær er undir mikilli pressu þessa dagana en Manchester United tapaði 2-0 gegn Burnley á heimavelli í gær.

Manchester United hefur samtals tapað fimm leikjum síðan 22. desember síðastliðinn.

„Þeir eru 30 stigum á eftir Liverpool. Viðvörunarbjöllur hringja," sagði Keown í Match of the day á BBC í gærkvöldi.

„Ég held að hann endist ekki út timabilið. Fólk segir að hann eigi að fá meiri tíma en þetta er Manchester United. Risa fótboltafélag."


Athugasemdir
banner
banner
banner