Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 23. janúar 2021 20:25
Victor Pálsson
Bruno kemur Liverpool til varnar
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes hefur komið Liverpool til varnar eftir erfitt gengi Englandsmeistarana í síðustu leikjum.

Liverpool er sex stigum frá toppsætinu eftir 1-0 tap gegn Burnley og gengur illa að skora mörk þessa dagana.

Sóknarmenn Liverpool hafa verið í töluverðri lægð en Fernandes segir að þeir séu ekki að spila illa þó það sé skoðun margra.

„Ég tel að öll lið eigi sín augnablik. Að mínu mati er Liverpool ekki að spila illa en þeir eru ekki að vinna og það er aðalmálið," sagði Fernandes.

„Þegar liðin eru ekki að vinna þá eru allir að tala um það. Þegar leikmenn skora ekki þá gildir sama regla."

„Ég finn sjálfur fyrir þessu því ég veit að það er búist við miklu. Þegar ég kom þá skoraði ég mikið og lagði mikið upp og allir vilja það frá mér."

„Það er það sama með Mo Salah, Roberto Firmino og Sadio Mane. Þeir hafa ekki skorað í síðustu leikjum og fólk hugsar að þeir séu ekki að spila vel."
Athugasemdir
banner
banner
banner