Það er stórleikur á Ítalíu í dag en alls eru fjórir leikir á dagskrá og mikið undir fyrir nokkur lið í þessari umferð.
Stórleikurinn er klukkan 17:00 en þá spilar AC Milan við lið Atalanta og getur mögulega styrkt stöðu sína á toppnum.
Milan er með þriggja stiga forskot á Inter Milan fyrir leikinn en leikið er á San Siro, heimavelli þeirra liða.
Inter spilar á sama tíma við Udinese á útivelli en gengi Udinese hefur alls ekki verið gott í síðustu leikjum.
Roma og Spezia munu þá spila klukkan 14:00 og um kvöldið tekur Fiorentina á móti botnliði Crotone.
Ítalska úrvalsdeildin:
14:00 Roma - Spezia
17:00 AC Milan - Atalanta
17:00 Udinese - Inter Milan
19:45 Fiorentina - Crotone
Athugasemdir