Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. janúar 2021 22:40
Victor Pálsson
Vonar að Lampard hringi í Redknapp
Fær Redknapp símtal?
Fær Redknapp símtal?
Mynd: Getty Images
Paul Merson, fyrrum leikmaður Arsenal, vill sjá Frank Lampard hringja í frænda sinn Harry Redknapp til að aðstoða hann hjá Chelsea.

Gengi Chelsea hefur verið ansi brösugt undanfarið og er farið að hitna verulega undir stjórastól Lampard.

Redknapp býr yfir mikilli reynslu sem knattspyrnustjóri og hefur unnið hjá liðum á borð við Tottenham og West Ham.

„Frank Lampard þarf að fá reynslumikinn þjálfara eins og Harry Redknapp til að koma og hjálpa honum hjá Chelsea," sagði Merson.

„Hann þarf einhvern sem ógnar ekki starfinu hans heldur einhvern sem er með mikla þekkingu og getur gefið góð ráð."

„Ég veit ekki af hverju Frank hefur ekki haft samband við einhvern því líkt og boðið þeim starf hjá félaginu."
Athugasemdir
banner
banner