Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 23. janúar 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bolton tísti á íslensku og minntist Íslendinga
Mynd: Bolton Twitter
Jón Daði Böðvarsson er genginn í raðir Bolton Wanderers og fékk að spreyta sig í síðari hálfleik í 0-1 sigri í gær.

Bolton leikur í ensku C-deildinni og verður áhugavert að sjá hvernig Jóni Daða gengur þar eftir að hafa verið í Championship deildinni undanfarin ár.

Bolton hefur mikla trú á Jóni Daða en Íslendingar hafa áður gert góða hluti hjá félaginu eins og er hægt að sjá í myndbandinu hér fyrir neðan. Nokkrir Íslendingar sem hafa leikið fyrir Bolton í fortíðinni eru Grétar Rafn Steinsson, Eiður Smári Guðjohnsen og Guðni Bergsson.

Bolton er fimm stigum fyrir ofan fallbaráttuna í C-deildinni og stefnir á að komast aftur upp í Championship deildina sem fyrst.


Athugasemdir
banner
banner
banner