Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 23. janúar 2022 14:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Liverpool á þrjá stoðsendingahæstu leikmenn tímabilsins
Mynd: Getty Images
Liverpool er 2-0 yfir gegn Crystal Palace í hálfleik en Virgil Van Dijk kom Liverpool yfir snemma leiks með hörku skalla eftir hornspyrnu frá Andy Robertson.

Eftir rúmlega hálftíma leik átti Robertson fyrirgjöf sem endaði hjá Alex Oxlade-Chamberlain og hann setti boltann í netið. Með þessum tveimur stoðsendingum er Robertson þriðji stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar með 8 slíkar.

Hann er á eftir samherjum sínum Trent Alexander Arnold sem er með 10 og Mohamed Salah sem er með 9.

Bakverðirnir Robertson og Alexander-Arnold hafa verið duglegir að mata semherja sína en þeir eru með 43 stoðsendingar hvor frá tímabilinu 2017/18.


Athugasemdir
banner
banner
banner