Fotbolti.net
23.02.13 - 11:37
Magnús Már Einarsson

Pablo Punyed í Fylki (Staðfest)

Pablo Punyed í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fylkir

Fylkismenn hafa samið við Pablo Punyed en hann kemur til félagsins frá Fjölni.

Pablo hefur æft með Fylki að undanförnu og hann er núna búinn að skrifa undir samning við félagið sem gildir út komandi tímabil.
Pablo er frá El Salvador en hann kom til Fjölnis frá Bandaríkjum fyrir síðasta tímabil.

Hinn 22 ára gamli Pablo var öflugur í vinstri bakverðinum hjá Fjölni í fyrra en hann var valinn í lið ársins í 1. deildinni.

Pablo spilaði alla leiki Fjölnis í fyrstu deildinni í fyrra og skoraði fjögur mörk en hann getur einnig leikið í öðrum stöðum en bakverði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.