Fotbolti.net
23.02.16 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Alex McLeish nýr stjóri Zamalek (Staðfest)

Alex McLeish nýr stjóri Zamalek (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alex McLeish, sem gerði garðinn frægan við stjórnvölinn hjá Rangers og skoska landsliðinu, er tekinn við egypska stórveldinu Zamalek.

McLeish hefur einnig stýrt skosku félögunum Motherwell og Hibernian, en hann lék 493 deildarleiki fyrir Aberdeen sem leikmaður og 77 landsleiki fyrir Skotland.
McLeish stýrði Birmingham City í fjögur ár áður en ferillinn fór beina leið niður á við eftir misheppnuð tímabil hjá Aston Villa, Nottingham Forest og Genk.

„Við höfum komist að samkomulagi við skoska stjórann Alex McLeish og tekur hann við aðalliði okkar,\" sagði Mortada Mansour, forseti Zamalek.

Martin Jol, sem hefur stýrt Fulham, Tottenham og Ajax meðal annars, er líklegur til að taka við Al Ahli í egypsku deildinni, en egypsku liðin eru að sækja í sig veðrið á einum mesta blómatíma knattspyrnu utan Evrópu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.