Fotbolti.net
23.02.16 - 09:48
Magnús Már Einarsson

Fjölnir fær króatískan miðjumann (Staðfest)

Fjölnir fær króatískan miðjumann (Staðfest)
Canon

Mynd: Fjölnir

Fjölnir hefur samið við Igor Jugovic frá Króatiu um að spila með liðinu á komandi tímabili.
Igor, sem er 27 ára miðjumaður, hefur spilað yfir 100 úrvalsdeildarleiki í heimalandi sínu ásamt að hafa spilað með Cejle í Slóveníu og Sheriff í Moldavíu.

Hann á jafnframt yfir 20 leiki með með yngri landsliðum Króatíu.

Fjölnismenn vinna þessa dagana í að styrkja leikmannahóp sinn eftir að hafa misst nokkra lykilmenn í vetur.

Komnir:
Daniel Ivanovski
Igor Jugovic frá Króatíu
Jónatan Hróbjartsson frá ÍR
Martin Lund Pedersen frá Danmörku

Farnir:
Aron Sigurðarson til Tromsö
Bergsveinn Ólafsson í FH
Jonatan Neftali
Kennie Chopart í KR
Mark Magee til Stratford
Ragnar Leósson í HK
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.