Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
banner
   þri 23. febrúar 2016 14:00
Magnús Már Einarsson
Hlynur Birgis ráðinn aðstoðarþjálfari Þórs (Staðfest)
Hlynur í leik með Þór á sínum tíma.
Hlynur í leik með Þór á sínum tíma.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hlynur Birgisson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Þórs í 1. deild karla en þetta kemu fram á heimasíðu félagsins.

Hlynur mun hann starfa við hlið Halldórs Donna Sigurðssonar, þjálfara Þórs.

Hlynur er uppalinn Þórsari og lék 265 leiki með liðinu á sínum tíma.

Hann lék einnig með Örebro í Svíþjóð í fjögur ár og þá spilaði hann 17 landsleiki með íslenska landsliðinu.

Hlynur hefur áður verið í þjálfarateymi Þórs/KA í meistara- og 2. flokki sem og fjölmörgum yngri flokkum hjá Þór.

„Hlynur er glerharður Þórsari sem skiptir miklu máli, hann þekkir félagið inn og út og hefur spilað með nokkrum af leikmönnunum og fylgst vel með þeim öllum. Ég vænti mikils af samstarfinu og tel þetta vera gæfuskref fyrir meistaraflokk karla sem og starfið í heild," sagði Donni, þjálfari Þórs, í viðtali við heimasíðu félagsins.
Slapp
banner