Fotbolti.net
23.02.16 - 10:56
Magnús Már Einarsson

Portúgalskur framherji í Fjarðabyggð (Staðfest)

Portúgalskur framherji í Fjarðabyggð (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Fjarðabyggð hefur fengið portúgalska framherjann José Alberto Djaló Embaló í sínar raðir.

Jose Alberto er 22 ára gamall en hann spilaði síðast með Rapid Búkarest í næstefstu deild í Rúmeníu.

Jose Alberto hefur einnig leikið með AEL Limassol í úrvalsdeildinni á Kýpur sem og með Beira-Mar í næstefstu deild í Portúgal.
Fjarðabyggð hefur misst marga leikmenn frá síðasta tímabili og þar á meðal framherjann Brynjar Jónasson en hann var langmarkahæstur hjá liðinu í 1. deildinni í fyrra.

Komnir:
Haraldur Þór Guðmundsson frá Leikni F.
José Alberto Djaló Embaló frá Rapid Búkarest
Marteinn Þór Pálmason frá Leikni F.
Sævar Örn Harðarson frá Elliða
Víglundur Páll Einarsson frá Einherja

Farnir:
Bjarni Mark Antonsson í KA (Var á láni)
Brynjar Jónasson í Þrótt
Carl Oscar Anderson
Emil Stefánsson í FH (Var á láni)
Elvar Ingi Vignisson í ÍBV
Hafþór Þrastarson í Fram
Ingvar Ásbjörn Ingvarsson í Leikni R. (Var á láni frá FH)
Kile Kennedy til Ástralíu
Nik Chamberlain í Aftureldingu
Viðar Þór Sigurðsson í KR (Var á láni)
Viktor Örn Guðmundsson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.