23.02.16 - 09:44
Magnús Már Einarsson
Brasilíumaður í Breiðablik (Staðfest)

Daniel Bamberg.

Mynd: Getty Images

Daniel Bamberg.

Mynd: Getty Images
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Daniel Bamberg hefur gert eins árs samning við Breiðablik en þetta kemur fram á Blikar.is.
Blikar misstu af Gary Martin í baráttu við Víking R. á dögunum en þeir hafa nú fengið Daniel til að styrkja sóknarleik sinn.
Daníel sem er 31 ára miðjumaður og framherji hefur undanfarin ár spilað í efstu deild í Noregi og Svíþjóð.
Hann hefur meðal annars spilaði með Norrköping og Örerbro í Svíþjóð en undanfarin ár hefur hann leikið með Haugasund í norsku efstu deildinni. Hann á að baki 248 leiki í efstu deild og hefur skorað 52 mörk.
Daníel, sem er fljótur leikmaður, er staddur í Brasilíu en ætti að koma til Íslands mjög fljótlega.
Komnir:
Daniel Bamberg
Guðmundur Atli Steinþórsson frá HK
Sergio Carrallo Pendás frá Spáni
Farnir:
Guðjón Pétur Lýðsson í Val
Kristinn Jónsson til Sarpsborg
Olgeir Sigurgeirsson í Völsung
Uppfært 10:17: Daniel var fyrst sagður vera með bæði brasilískt og sænskt vegabréf í frétt blikar.is. Því hefur nú verið breytt en Daniel er Brasilíumaður í húð og hár.