Fotbolti.net
23.02.16 - 09:27
Magnús Már Einarsson

Þriðja mexíkóska landsliðskonan í Þór/KA (Staðfest)

Þriðja mexíkóska landsliðskonan í Þór/KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Mexíkóski miðjumaðurinn Natalia Comez Junco hefur samið við Þór/KA um að leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.

Hún er þriðji mexíkóski landsliðsmaðurinn sem kemur til Þór/KA í vetur en áður hafði markvörðurinn Cecilia Santiago samið við félagið sem og framherjinn Stephany Mayor.
„ Við teljum okkur vera að fá sterkan karakter með reynslu úr landsliðum Mexíkó,\" sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þórs/KA um nýjasta leikmanninn.

„Fjölhæfur, skapandi miðjumaður sem hefur gott auga fyrir spili og færum. Góður karakter sem ég efast ekki um að eigi eftir að lyfta okkar stelpum uppá enn hærra plan og bæta liðið til muna. Ég bind miklar vonir við hana, eins og hinar auðvitað.\"

Hér má svo stutt myndband með leikmanninum.

Heimild: Heimasíða Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.