Fotbolti.net
23.02.17 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Frimpong til Svíþjóðar (Staðfest)

Emmanuel Frimpong.

Emmanuel Frimpong.

Canon

Mynd: Getty Images

Emmanuel Frimpong, fyrrum leikmaður Arsenal, hefur samið við AFC Eskilstuna í Svíþjóð.

Hinn 25 ára gamli Frimpong ólst upp hjá Arsenal og lék nokkra leiki með aðalliði félagsins áður en hann fór til Ufa í Rússlandi árið 2014.
Í fyrra fór Frimpong skipti Frimpong um félag í Rússlandi en hann gekk þá í raðir Arsenal Tula.

Frimpong er nú mættur til Svíþjóðar þar sem hann ætlar að hjálpa nýliðum Eskilstuna á komandi tímabili.

Eskilstuna hefur fleiri fyrrum leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni í sínum röðum því John Mensah, fyrrum varnarmaður Sunderland, er einnig hjá liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.