Fotbolti.net
23.02.17 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Kristján Pétur í ÍR (Staðfest)

Kristján Pétur Þórarinsson.

Kristján Pétur Þórarinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR hefur fengið markvörðinn Kristján Pétur Þórarinsson í sínar raðir frá FH.

Kristján Pétur var á síðasta tímabili í láni hjá Leikni R. þar sem hann var varamarkvörður.

Þessi 22 ára gamli leikmaður var á láni hjá Víkingi Ólafsvík og Dalvík/Reyni sumarið 2015.
Magnús Þór Magnússon hefur varið mark ÍR frá 2013 en ólíklegt er að hann verði með liðinu í sumar vegna meiðsla.

Magnús spilaði tólf leiki þegar ÍR vann 2. deildina í fyrra en Helgi Freyr Þorsteinsson spilaði hina tíu leikina.

Helgi og Kristján munu nú berjast um markmannsstöðuna hjá ÍR í Inkasso-deildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.