Fotbolti.net
23.02.17 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Spánverji og tveir ungir í Leikni F. (Staðfest)

Sigurður Kristján Friðriksson er genginn í raðir Leiknis.

Sigurður Kristján Friðriksson er genginn í raðir Leiknis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir Fáskrúðsfirði heldur áfram að leita til Spánar í leit að liðsstyrk fyrir sumarið í Inkasso-deildinni en félagið hefur fengið framherjann Carlos Carrasco Rodriguez í sínar raðir.

Í fyrra komu sex Spánverjar við sögu hjá Leikni í Inkasso-deildinni og einn þeirra, Jesus Guerrero Suarez, verður áfram með liðinu í sumar.

Á dögunum kom spænski varnarmaðurinn Javier Angel Del Cueto til Leiknis og Carlos hefur nú bæst í hópinn.

Carlos er 24 ára sóknarmaður en hann getur leyst nokkrar stöður framarlega á vellinum. Carlos hefur á ferli sínum leikið með Almoradí, Orihuela, Arroyo og FC Jove Espanol í spænsku neðri deildunum. Fyrir nokkrum árum lék hann einnig með FC Dordrecht í næstefstu deild í Hollandi.
Leiknir hefur einnig fengið Sigurð Kristján Friðriksson frá Fram og Sverri Bartolozzi frá Stjörnunni.

Sigurður Kristján er vinstri bakvörður en hann lék sextán leiki með Fram í 1. deildinni árið 2015. Í fyrra spilaði hann á láni með Skallagrími í 4. deildinni.

Sverrir var að ganga upp úr 2. flokki síðastliðið haust en hann kom til Stjörnunnar frá Haukum í fyrra. Hann kemur til Leiknis á láni frá Stjörnunni.

Komnir:
Carlos Carrasco Rodriguez frá Spáni
Javier Angel Del Cueto frá Spáni
Kristinn Justiniano Snjólfsson frá Sindra
Robert Winogrodzki frá Þýskalandi
Sigurður Kristján Friðriksson frá Fram
Sverrir Bartolozzi frá Stjörnunni (Á láni)

Farnir:
Adrian Murcia til Spánar
Andres Salas Trenas til Spánar
Anto Pejic til Króatíu
Antonio Calzado Arevalo til Spánar
Dagur Már Óskarsson í Magna
Garðar Logi Ólafsson í Víking R.
Ignacio Poveda Gaona til Spánar
Jose Omar Rocamora til Spánar
Kristófer Páll Viðarsson í KA
Valdimar Ingi Jónsson í Víking R. (Var á láni)
Leiknismenn fagna sigri í fyrra.

Leiknismenn fagna sigri í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.