Manchester United tók á móti Watford fyrr í dag í ensku úrvalsdeildinni, þar voru þrjú mörk skoruð og það voru heimamenn sem sáu um markaskorun í leiknum.
Bruno Fernandes skoraði fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu skömmu fyrir hálfleik. Anthony Martial skoraði annað markið og Mason Greenwood það þriðja.
Fernandes lagði upp fyrir Mason Greenwood og átti sinn þátt í marki Anthony Martial einnig.
Það var því engin spurning hver yrði valinn maður leiksins, Portúgalinn Bruno Fernandes fékk þann titil eftir sinn þriðja deildarleik með Rauðu djöflunum.
Hér að neðan má sjá einkunnir úr leiknum, þær koma frá Sky Sports.
Einkunnir Man Utd: De Gea (7), Wan-Bissaka (7), Lindelof (7), Maguire (7), Shaw (7), Fred (7), Matic (7), Fernandes (9), James (7), Martial (8), Greenwood (7).
Einkunnir Watford: Foster (5), Kabasele (5), Dawson (5), Cathcart (5), Masina (5), Hughes (6), Doucoure (6), Capoue (5), Deulofeu (5), Pereyra (5), Deeney (6).
Varamenn: Sarr (5).
Maður leiksins: Bruno Fernandes.
Athugasemdir