23.02.22 - 17:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Keflavík fær brasilískan sóknarmann (Staðfest)

Mynd: Keflavík

Mynd: Keflavík

Sóknarmaðurinn Ana Paula Silva Santos hefur samið við Keflavík um að leika með liðinu í efstu deild kvenna á komandi tímabili.
Ana Santos er fædd í Brasilíu en hefur leikið í Bandaríska háskólaboltanum undanfarinn 5 ár og var meðal annars valinn leikmaður ársins 4 ár í röð af SSAC sambandinu í háskólaboltanum og besti leikmaður NAIA 2020 og 2021.

„Mikið er vænst af leikmanninum og hlökkum við mikið til að sjá hana á HS-Orku vellinum í sumar! Við viljum bjóða Ana Santos hjartanlega velkomna til liðs við okkur í Keflavík," segir í tilkynningu Keflavíkur.
Ana er fædd árið 1998. Hún er komin með leikheimild og má því spila með Keflavík í næsta leik á undirbúningstímabilinu. Sá leikur verður gegn Fylki á sunnudaginn í Lengjubikarnum.