Fotbolti.net
23.02.26 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Segir Víkinga hafa verið klára með plan

Jóhannes Kristinn Bjarnason.

Jóhannes Kristinn Bjarnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Óli Sigurðsson, sérfræðingur Þungavigtarinnar, segir að Víkingar hafi verið klárir með plan að sækja Jóhannes Kristinn Bjarnason ef Valdimar Þór Ingimundarson hefði farið út í atvinnumennsku eins og honum bauðst.

Víkingur samþykkti tilboð frá sænska félaginu Kalmar í Valdimar í byrjun mánaðarins. Valdimar, sem var besti leikmaður Bestu deildarinnar á síðasta tímabili, neitaði hins vegar tilboðinu.
Valdimar hafnaði Kalmar
TENGT EFNI

Valdimar hafnaði Kalmar

„Ef Valdimar hefði tekið þessu tilboði frá strákunum í Kalmar, þá voru þeir klárir með plan. Það er Jóhannes Kristinn Bjarnason," sagði Kristján Óli.

Valdimar verður 27 ára á þessu ári. Hann hefur áður reynt fyrir sér í atvinnumennsku, var hjá norsku félögunum Strömsgodset og Sogndal eftir að hafa vakið athygli með uppeldisfélaginu Fylki. Hann sneri aftur heim eftir tímabilið 2023 og samdi við Víking þar sem hann hefur leikið frábærlega.

Jóhannes Kristinn er leikmaður Kolding í Danmörku. Hann lék með KR áður en hann fór út og var þar lykilmaður. Hann hefur undanfarið verið orðaður við heimkomu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.