Víkingur samþykkti fyrir helgi tilboð frá sænska félaginu Kalmar í Valdimar Þór Ingimundarson.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafnaði Valdimar hins vegar tilboði Kalmar og fer ekki til félagsins.
Valdimar var valinn besti leikmaður Bestu deildarinnar á síðasta tímabili þegar Víkingur vann Íslandsmeistaratitilinn.

Kalmar fór upp úr sænsku B-deildinni og verður í úrvalsdeildinni á komandi tímabili.
Valdimar verður 27 ára á þessu ári. Hann hefur áður reynt fyrir sér í atvinnumennsku, var hjá norsku félögunum Strömsgodset og Sogndal eftir að hafa vakið athygli með uppeldisfélaginu Fylki. Hann sneri aftur heim eftir tímabilið 2023 og samdi við Víking.
Hann er samningsbundinn Víkingi út tímabilið 2027.
Athugasemdir