Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 23. mars 2020 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea hefur áhuga á að fá Rice
Declan Rice
Declan Rice
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur áhuga á því að fá Declan Rice aftur til félagsins frá West Ham United en Sky Sports greinir frá þessu.

Þessi 21 árs gamli leikmaður ólst upp hjá Chelsea en yfirgaf félagið árið 2014 og samdi við West Ham.

Hann hefur spilað stórt hlutverk í liði West Ham síðustu þrjú tímabil og hefur þegar unnið sér sæti í enska landsliðshópnum en hann á 7 landsleiki að baki fyrir England.

Chelsea vill fá Rice aftur til félagsins í sumar en ljóst er félagið þarf að leggja út mikið fé til að fá hann.

Rice á fjögur ár eftir af samningnum sínum hjá West Ham og þá á félagið möguleika á að framlengja þann samning um eitt ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner