Fotbolti.net
08.09.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Yamal um Dembélé: Er það ekki vinur Kylian?

Yamal um Dembélé: Er það ekki vinur Kylian?
Canon

Mynd: EPA

Spænska ungstirnið Lamine Yamal svaraði ýmsum spurningum á fréttamannafundi fyrir leik Barcelona gegn Feyenoord í fyrstu umferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar.
Yamal svaraði meðal annars spurningum um Ballon d'Or verðlaunin. Ousmane Dembélé vann í fyrra og var á dögunum spurður hvaða þrjá leikmenn hann teldi eiga skilið að keppast um verðlaunin í ár. Hann er einn af fáum sem nefndi ekki Yamal og svaraði ungstirnið skoplega þegar hann var spurður út í málið.

„Hver var það sem setti mig ekki í topp þrjá?" svaraði Yamal glottandi þó hann hafi augljóslega heyrt nafn Ousmane Dembélé í spurningunni. „Er það ekki vinur Kylian (Mbappé)?"

Yamal uppskar hlátur við þessi ummæli en svaraði svo spurningunni.

„Í raun er mér alveg sama. Ég er mjög ánægður með árið sem ég átti og þegar ég mætti þeim tveimur saman (Dembélé og Mbappé) þá líkaði þeim ekki sérlega vel við mig af einhverjum ástæðum," hélt Yamal áfram og vitnaði þar í sigra Spánverja gegn Frakklandi í Þjóðadeildinni og á heimsmeistaramótinu.

„Ég á í góðum samskiptum við Ousmane og ég skil að hann velji aðra leikmenn í topp 3. Ég veit að allur heimurinn sá hversu gott tímabil ég átti þó hann hafi ekki séð það."

Dembélé taldi upp Harry Kane, Khvicha Kvaratskhelia og Kylian Mbappé þegar hann var spurður út í hvaða þrír leikmenn verðskulduðu að berjast um Gullboltann.

Yamal gæti verið valinn þriðja árið í röð
TENGT EFNI

Yamal gæti verið valinn þriðja árið í röð

Yamal um Dembélé: Er það ekki vinur Kylian?
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.