Callum Hudson-Odoi, leikmaður Chelsea, hefur nú náð fullum bata og er læknaður af kórónaveirunni sem hann greindist með fyrir tveimur vikum en þetta kemur fram á heimasíðu Chelsea.
Hudson-Odoi er aðeins 19 ára gamall en eins og áður segir greindist hann með veiruna fyrir tveimur vikum.
Æfingasvæði Chelsea var lokað í kjölfarið en nú staðfestir klúbburinn að hann sé læknaður.
Leikmaðurinn greindi frá því á Twitter þann 13. mars að hann væri með veiruna en væri að fara eftir læknisráði og var í einangrun á heimili sínu.
Veiran hefur verið skæð um alla Evrópu en 335 dauðsföll eru staðfest á Bretlandseyjum.
Athugasemdir