Karlalið þýska félagsins Wolfsburg hóf æfingar á ný í dag þrátt fyrir versnandi ástand vegna kórónaveirunnar en félagið greindi frá þessu á heimasíðu sinni í dag.
Íþróttaviðburðum hefur verið frestað næstu vikurnar til að koma í veg fyrir útbreiðslu á veirunni og þá hafa íþróttamenn verið duglegir við að minna fólk á að vera heima.
Sú herferð virðist ekki eiga við um Wolfsburg því allur leikmannahópurinn hóf æfingar í dag. Félagið greinir þó frá því að þetta sé gert á skynsamlegan hátt og að leikmönnum sé skipt í hópa.
Öllum knattspyrnuleikjum í þýsku deildunum var frestað til 3. apríl en það má búast við tilkynningu á næstu tveimur dögum um að fresta fram í maí.
Athugasemdir